Hæ aftur!

Nei, ég er ekki búin að gefast upp. Hef bara verið í smá lægð. Veit að ég er svo til nýbyrjuð í átakinu, en svona er þetta bara. Nú þarf ég bara að ná mér á réttan kjöl aftur. Ég hef ekkert þyngst, svo sem, en ekkert lést heldur. Ég ætla ekkert að afsaka mig, þó ég sé auðvitað með hundrað afsakanir á takteinunum – en er maður það ekki alltaf? Nei, nú bara set ég kraft og dug í þetta hjá mér.

Smá breytingar. Ég ætla að hætta að hafa matar- og hreyfingardagbók hér á sér síðu. Ég skrifa það þá heldur bara í bloggfærsluna hverju sinni. Er líka hætt að mæla ummál mitt með málbandi, mér finnst nóg að eiga við tölurnar sem vigtin gefur mér í hverri viku þó ég þurfi ekki að kljást við talnaflóðið sem fylgir sentímetramælingu. Spegillinn og vídd á fötum finnst mér miklu betri mælikvarðar.

Mig langar voða mikið að vera orðin 85 kíló (léttast um tvö) á afmælisdaginn minn eftir tæpar tvær vikur, en þá þarf ég líka aldeilis að taka mig á. Nú ríf ég mig upp úr kex- og sætabrauðsáti liðinna vikna og set mér hér með það markmið að borða a.m.k. 2 ávexti á dag, drekka a.m.k. 6 vatnsglös á dag og fara að sofa fyrir miðnætti.

febrúar 4, 2010. Uncategorized.

Rita ummæli

Be the first to comment!

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

Trackback URI

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.