Annað kíló fokið
Jibbí! 1 kíló fokið í þessari viku, 3 á þessu ári og 8 frá því að ég var þyngst! Þetta er allt á góðu róli bara.
Ég er búin að vera ágætlega dugleg að hreyfa mig, er farin að horfa á eldgamla Friends-þætti á meðan ég hleyp á brettinu heima. Það gerir þetta miklu skemmtilegra. Ég nálgast markmiðið mitt hægt og rólega, nú get ég hlaupið 4,4 km á hálftíma. Ég er samt að spá í að fara að hlaupa lengur í einu og hugsa ekki eins um hraðann.
Á mánudaginn byrjaði ég að skrifa matar- og hreyfingardagbók. Það er gott að fá yfirlit yfir þetta allt saman. Ég er að spá í að skella henni bara hingað inn á síðuna, þá getið þið kíkt á hana ef þið viljið og kannski gefið mér góð ráð.
Takk fyrir stuðninginn!
Dóra replied:
Ég er alveg eins, ég þarf að hafa eitthvað skemmtilegt í sjónvarpinu meðan ég er að púla á tækinu, þá líður tíminn miklu hraðar
janúar 18, 2010 at 15:37. Permalink.
arangur101 replied:
vá mér finnst þú vera svo dugleg! gangi þér rosa vel, þú getur þetta skvísa!
janúar 20, 2010 at 08:50. Permalink.
Spikbolla replied:
Gaman að heyra að vel gengur og heyra hversu jákvæð þú ert. Ég tók áskorun þinni um að kíkja á matardagbókina og koma með ráð
Sá að þú færð þér oft Special K, og vil ég endilega benda á að það sé mikill misskilningur að Special K sé sniðugt að maula í átaki, en það inniheldur alveg óhemju af sykri. Sama má segja um margar mjólkurvörur, svo ég hvet þig til að lesa þér til um kolvetnismagnið í innihaldslýsingum
Einnig sá ég að þú ert mjög hrifin af sósum. ég hvet þig til að reyna að finna hitaeiningasnauð afbrigði af sósum, eins og t.d. gerðar úr jógúrt.
Og ég óska þér alls hins besta
janúar 26, 2010 at 13:18. Permalink.
eldlilja replied:
Heyrðu, takk fyrir ráðin! Ég hætti þá að éta Special K.
febrúar 4, 2010 at 01:20. Permalink.