Fyrsta vikan búin
Svo að það sé á hreinu þá er ein vika hjá mér frá föstudegi til fimmtudags.
Ég get ekki annað en verið glöð með árangur fyrstu vikunnar. Ég léttist um tvö kíló, er orðin 88 kg! Ótrúlegt hvað tiltölulega smáar breytingar geta gert. Ég mun ábyggilega ekki missa tvö kíló í hverri viku, en vonandi mun saxast á þetta smátt og smátt.
Ég hljóp þrisvar á brettinu, 3 km í senn. 19:21 – 20:30 – 19:56. Svo fór ég líka nokkrum sinnum í göngutúr. Meiri var nú ekki hreyfingin.
Ég minnkaði skammtastærðir mínar og sleppti nammi og snakki – þó að ég hafi reyndar fengið mér smá laufabrauð og súkkulaði hjá ömmu og afa, úps.
Gærdagurinn var byrjun viku 2. Hann gekk ágætlega, en ég fékk mér aðeins of mikið í kvöldmatinn og svo smá daim-ís með súkkulaði í eftirrétt. En málið er að ís með samviskubitskryddi er ekki einu sinni svo góður! Ég áttaði mig á mistökum mínum, en ákvað að láta þetta ekki stoppa mig. Þegar ég var búin að melta skellti ég mér í íþróttafötin og hljóp þrjá kílómetrana á hlaupabrettinu. Ég bætti mig og fór þá á 18:56. Markmiðið mitt er að hlaupa þá á 18 mínútum sléttum, en til þess þarf ég að vera á 10 km/klst meðalhraða. Á þeim hraða kemst ég 5 km á hálftíma en það er í raun langtímamarkmiðið mitt. Þegar ég hef náð 3 km á 18 mín þá ætla ég að stefna að því að fara 4 km á 24 mín og þegar ég næ því fer ég að reyna við 5 km. Ég ætla að nota þessa aðferð stundum en svo ætla ég líka stundum að hlaupa í hálftíma og sjá hvað ég næ að hlaupa langt.
Í þessari viku byrja ég líka í skólaíþróttunum, þær eru á þriðjudögum, ein klst. í senn. Ég er í lyftingum á þessari önn, líkt og þeirri síðustu. Það gengur þannig fyrir sig að fyrst fer ég í upphitun í u.þ.b. 10 mínútur (bretti/stígvél/þrekhjól), svo fer ég einn hring í lyftingatækjunum og teygi í lokin. Ég get farið í aukatíma eftir skóla á miðvikudögum og líka mánudags- og fimmtudagsmorgna, ef ég nenni að vakna.
mcapple replied:
Glæsilegt, til hamingju!
Haltu svona áfram
janúar 10, 2010 at 14:27. Permalink.
Skotta replied:
Flott, haltu áfram
Þú getur kíkt á síðuna okkar við erum nokkrar átaksgellur saman
janúar 11, 2010 at 16:02. Permalink.
Spikbolla replied:
Flott að missa tvö kíló fyrstu vikuna
Líst vel á þetta hjá þér
janúar 13, 2010 at 22:48. Permalink.