Kynning

Hæ!

Ég er sautján (næstum átján) ára stelpa, ég bý í Reykjavík og stunda nám við framhaldsskóla. Ég kýs að blogga hér undir nafninu Eldlilja. Ég valdi það því að eldliljur eru uppáhaldsblómin mín.

Ég er 164 sentímetrar og 90 kíló. Það þýðir að BMI-stuðullinn minn er 33,5. Samkvæmt doktor.is fell ég þar með í flokkinn „Offita (verulega aukin dánartíðni)“ og þar segir ennfremur: „Ef BMI er yfir 30 er áríðandi að grípa til aðgerða.“ Það ætla ég að gera. Ég ætla að léttast mikið, markmiðið er að missa 30 kíló. Þegar það tekst mun BMI-ið mitt verða 22,3 – sem er í flokknum „Heilbrigði.“

Þetta mun verða erfitt, á því liggur enginn vafi. Ef svona lagað væri ekki erfitt væri ég löngu búin að losa mig við þessi kíló. En mér mun takast þetta. Ég veit að ég get þetta, ég verð bara að gera þetta. En eitt er víst – ég get þetta ekki án stuðnings. Og stuðningur í formi kommenta á bloggfærslurnar mínar væri mér gjörsamlega ómetanlegur. Ef þið eruð líka með átaks- eða lífsstílsblogg eða eitthvað svoleiðis, endilega kommentið og segið mér frá því. Það væri gaman að fylgjast með öðrum sem eru líka að léttast.

Það verður erfitt að fara að borða smærri skammta, standast freistingar og hreyfa sig á hverjum degi. En það verður mjög auðvelt að sjá kílóin og sentímetrana fjúka – guð, hvað ég hlakka til þess!

Önnur færsla á morgun! Ég lofa því hér skriflega því að þá er líklegra að ég standi við það.

desember 29, 2009. Uncategorized.

Rita ummæli

Be the first to comment!

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

Trackback URI

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.