Gamlársdagur
Jæja, þetta verður stutt núna.
Ef ég hef ekki gert það ljóst, þá byrjar átakið mitt formlega á morgun, þann 1. janúar 2010. Klisja, ég veit, en þetta er bara svo skýr ný byrjun. Ég bæði hlakka til og kvíði fyrir. Hlakka samt meira til.
Gangi ykkur öllum vel og eigið yndisleg áramót.
Rólan
Það var einn fagran sumardag árið 2009 að ég var að labba heim að húsinu mínu. Ég var í góðu skapi út af einhverju og þegar ég smeygi mér inn í bakgarðinn sé ég rólurnar bærast örlítið í golunni. Ég ákveð að róla mér aðeins í heitri sólinni og fagna lífinu. Ég er komin á gott flug þegar allt í einu heyrist BRAK og ég hlammast á minn stóra rass í mitt limgerðið fyrir aftan rólurnar. Núna sveifluðust fyrir framan mig tvö sakleysisleg bönd, í hvoru þeirra hálfur róluplanki.
Ég hafði brotið róluplankann.
Ég var virkilega orðin það þung að ég hafði brotið fjandans róluplankann! Þetta var eins og atriði í lélegri teiknimynd. Þá var ég 95 kíló. Síðan hef ég ekki rólað mér.
Þetta atvik var svolítið „wake up call.“ Auðvitað vissi ég að ég væri allt of feit, ég hef vitað það alla ævi. En ég meina, ég braut fjandans róluna! Í kjölfarið missti ég 5 kíló.
En það er ekki nóg. Eins og ég sagði í gær vil ég komast niður í 60 kíló (þ.e. losna við 30 kg). Þetta er bara eitthvað sem ég verð að gera. Ég hef verið of feit alla ævi og nú langar mig að stíga út úr fitubúningnum, losa mig við þetta í eitt skipti fyrir öll.
Það ætla ég að gera með því að fylgja þessum þremur sjálfsögðu meginreglum: Borða minna, borða hollara, hreyfa mig meira.
Ég ætla ekki að kaupa mér líkamsræktarkort, enda sé ég ekki tilganginn í því. Ég hef aðgang að æfingasal skólans oft í viku, heima á ég hlaupabretti og sippubönd, ég á góða hlaupaskó og fjöldi göngustíga er í nágrenninu, og sundlaug. Ég ætla að hreyfa mig á hverjum degi, hvað sem mér finnst ég hafa lítinn tíma. Það er alltaf hægt að taka hálftíma í að a.m.k. hlaupa tvo kílómetra á brettinu og skella sér í sturtu. Ég hef engar afsakanir.
Ég ætla líka alltaf að fá mér einn skammt (einu sinni á diskinn) og velja hollari kostinn. Ég ætla að drekka meira vatn og borða meira grænmeti og ávexti. Það er alltaf til vatn og oftast eru til ávextir og grænmeti heima hjá mér. Svo, engar afsakanir.
Enda á ég ekkert að vera að finna afsakanir til að vera feit áfram. Ég ætti miklu frekar að einbeita mér að kostunum sem fylgja því að grennast!
Kynning
Hæ!
Ég er sautján (næstum átján) ára stelpa, ég bý í Reykjavík og stunda nám við framhaldsskóla. Ég kýs að blogga hér undir nafninu Eldlilja. Ég valdi það því að eldliljur eru uppáhaldsblómin mín.
Ég er 164 sentímetrar og 90 kíló. Það þýðir að BMI-stuðullinn minn er 33,5. Samkvæmt doktor.is fell ég þar með í flokkinn „Offita (verulega aukin dánartíðni)“ og þar segir ennfremur: „Ef BMI er yfir 30 er áríðandi að grípa til aðgerða.“ Það ætla ég að gera. Ég ætla að léttast mikið, markmiðið er að missa 30 kíló. Þegar það tekst mun BMI-ið mitt verða 22,3 – sem er í flokknum „Heilbrigði.“
Þetta mun verða erfitt, á því liggur enginn vafi. Ef svona lagað væri ekki erfitt væri ég löngu búin að losa mig við þessi kíló. En mér mun takast þetta. Ég veit að ég get þetta, ég verð bara að gera þetta. En eitt er víst – ég get þetta ekki án stuðnings. Og stuðningur í formi kommenta á bloggfærslurnar mínar væri mér gjörsamlega ómetanlegur. Ef þið eruð líka með átaks- eða lífsstílsblogg eða eitthvað svoleiðis, endilega kommentið og segið mér frá því. Það væri gaman að fylgjast með öðrum sem eru líka að léttast.
Það verður erfitt að fara að borða smærri skammta, standast freistingar og hreyfa sig á hverjum degi. En það verður mjög auðvelt að sjá kílóin og sentímetrana fjúka – guð, hvað ég hlakka til þess!
Önnur færsla á morgun! Ég lofa því hér skriflega því að þá er líklegra að ég standi við það.
Fyrir byrjun
Sælt veri fólkið.
Klukkan er hálf fjögur um nótt þann 28. desember 2009 og ég er að skrifa mitt fyrsta blogg hér á þessa nýju bloggsíðu mína.
Þetta verður átaksblogg. Því að ég ætla að missa 30 kíló. Já, 30 kíló! Og skrifa allt um það hér á þessa síðu.
Nánari upplýsingar á morgun.
Bíðið spennt…